1.11.2006 | 11:47
ATH.!
KOMINN MEÐ NÝJA SÍÐU
(REYNDAR TVÆR)
HTTP://WWW.BLOG.CENTRAL.IS/FLUCHTMADCHEN
EÐA
HTTP://WWW.BLOG.MYSPACE.COM/PINKFLOYDOGGUNSNROSES
Tónlist | Breytt s.d. kl. 11:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2006 | 10:36
SKILABOÐ!
VELKOMINN Á
BESTU SÍÐU SEM
VÖL ER Á HÉR
FINNURÐU
"BÓKSTAFLEGA
ALLT":ROCK N
ROLL,KYNLÍF
NEFNDU
ÞAÐ,PASSAÐU ÞIG
Á ÞVÍ AÐ SMELLA
BARA Á
MÁNUÐINA TIL
ÞESS AÐ GETA SÉÐ
"ALLAR
GREINARNA"!
KOMASVO KROTA Í
GESTÓ,EMAIL OG
WEB!!!!!!
-SJÁUMST!!
~ROCK N ROLL!
Tónlist | Breytt s.d. kl. 10:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.9.2006 | 12:02
BÓLFÉLAGA REGLUR!
Það eru nokkrar reglur sem verða að vera í heiðri hafðar þegar fólk ætlar að vera í bólfélaga sambandi. En það er EIN regla sem skiptir öllu máli; það er að vera búin að ræða saman um fyrirkomulagið áður en þið sofið saman. Ef þið klikkið á því þá er hætt við að annaðhvort ykkar endi sært útí horni í bleikum kjól að skrifa ljóð, með Nick Cave á fóninum; og trúiði mér að þetta gerist. En fyrst vil ég beina þeim tilmælum til þeirra sem geta ekki átt bara bólfélaga og fólks sem ekki tekur ábyrgð á tilfiningum sínum, er óheiðarlegt eða reynir að kenna öðrum um hvernig því líður að hætta bara að lesa hérna. Ef þú ert í þessum hóp höfðar þetta ekki til þín á nokkurn hátt... Ef þú ert enn að lesa þá vil ég byrja á að segja að ég er að lýsa minni skoðun, og það þarf ekkert að vera að þú sért sammála mér á nokkrun hátt. Og ef svo er þá er það bara þitt mál, en endilega komdu þá með "comment" á það hverju þú ert ósammála eftir lesturinn!!! Áður en þið byrjið á "hitaeiningabrennslunni" þá skuluð þið tala saman og vera með það hreinu að þið erum bæði að fara að stunda kynlíf en eruð ekki að vonast til að það verði eitthvað meira úr þessu (en það gerist stundum og ég tala um það á eftir). Fyrst að þið getið verið nakin að veltst um í sveittu kynlífi þá myndi maður nú halda að það ætti ekki að vera vandamál að ræða saman áður! Þetta er mjög simple þið bara segið við hinn aðilann: mig langar til að sofa hjá þér en ég er ekki að leita eftir föstu sambandi!!!! Þetta er langbesta leiðin til að koma í veg fyrir allan misskilning, og svo eru líka miklu meiri líkur á að þið skemmtið ykkur helmingi betur á meðan á eróbikinu stendur! Þú verður að setja ákveðnar reglur og það þýðir ekki bara að hugsa um þær, þú verður að segja hinum aðilanum frá þeim (hann eða hún kann ekki að lesa hugsanir). En svo kemur það líka stundum fyrir að hlutirnir breytast; annar aðilinn fera að finna fyrir tilfinningum og verður "hrifinn" og fer að vona að hinn aðilinn verði hrifinn líka. Það er mjög einfalt meðal við þessu og það er að TALA SAMAN!!! Ef þú kemur ekki hreint fram þá verður þú sár, og í staðinn fyrir að bera ábyrgð á tilfinningum þínum ferðu að vonast til að þér takist að sannfæra hinn í sambandinu um að finna sömu "tilfinningar" og flytur ábyrgðina á þínum tilfinningum yfir á hinn aðilann. Ástæðan fyrir því að ég nota gæsalappir í textanum áðan er sú að ég held að í flestum tilfellum sé "tilfinningin" einfaldlega höfnunarþrá, eða að fólk sé haldið þeirri sorglegu meinloku að það geti látið fólk verða ástfangið af sér ef það sefur hjá því. Þú getur ekki borið ábyrgð á slíku fólki. En þú getur aftur á móti verið skynsamur og haft augun opin og ekki sofið hjá einstakling sem þú sérð að er ekki í andlegu jafnvægi. 1. Talið saman áður en þið sofið saman 2. Ef þú ferð að finna einhverjar tilfinningar og þú ferð að vonast eftir sambandi, eftir að þið hafið rætt um að þið ætlið bara að vera bólfélgar segðu þá hinum aðilanum frá því eða slíttu bara sambandinu. 3. Þú berð ábyrgð á þínum tilfiningum. Ekki reyna að láta hinn aðilann gera það. P.S. Það er ekki til neitt sem heitir tilfinningalaust kynlíf, þveröfugt. Því ég held að þú getir ekki stundað kynlíf með einhverjum sem þér þykir ekki vænt um, nema þú sért að misbjóða sjálfum þér. En það eru bara ekki sömu tilfinningar í spilunum og þegar þú ert í sambandi. |
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.9.2006 | 12:00
Sjálfsfróun
Jæja strákar. Þið kannist mjög eflaust við það að vera að springa úr greddu og runka ykkur í svefn. Kannski er þetta orðinn svo mikill vani að þið getið allsekki sofnað án þess að kippa í hann. Núna ætla ég að segja ykkur af nokkrum staðreyndum sem fáir virðast, því miður, vera meðvitaðir um! Ef þið SLEPPIÐ því að runka ykkur!!!
1. Ef þið runkið ykkur ekki náið þið að halda félaganum uppi lengur þegar þið eruð í orrustu.
2. Þið njótið þess meira að sofa hjá stelpunni því þið eruð ekki að rifja upp óteljandi atriði úr klámmyndum til að geta fengið það.
3. Þegar þið viljið svo fá það þegar þið eruð að ríða, þá er það eina sem þið þurfið að gera að HÆTTA AÐ HUGSA OG NJÓTA ÞESS AÐ TAKA Á PÍUNNI.
4. Kynlífið verður fjölbreyttara.
5. Þú sefur betur og vaknar með mikið meira power daginn eftir. Þú ert ekki búinn að losa sjálfan lífsvökvann úr kroppnum kvöldið áður!
6. Þegar þú runkar þér ekki, gefur þú frá þér "lykt" sem er kölluð
phenome , sem er lyktin sem við mannfólkið gefum frá okkur þegar við viljum láta hin dýrin í hjörðinni vita að við erum gröð.
Þetta er dálítið erfit fyrst, en svo saknið þið þess ekki neitt.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2006 | 11:31
Sölvi Blöndal vs. Bjössi Mínus
Sölvi Blöndal vs. Bjössi Mínus
Sölvi Blöndal úr Quarahsi og Bjössi úr Mínus með diktófón á kaffihúsi talandi um tónleikaferðalög, tráma, stelpur, ofbeldi, ofbeldisfullar stelpur, ógeðslegar vinnur, eiturlyf, handleggsbrot, útlönd og Negra Norðursins.

Um það að eiga kærustu þegar maður er á túr
Bjössi: Að fara á svona almennilegan túr er eins og að fara á rosa kúrs í félagsfræði. Hvernig ríaktarðu þegar þú lendir í svona aðstöðu? Hvað gerirðu þegar þessi kýlir þennan? Hvernig ríaktarðu þegar það eru bara tvö rúm og þið eruð sex ... skilurðu. Þið dragið, þið farið ekki að rífast.
Sölvi: Ég veit það, þetta getur verið rosalega erfitt og maður lærir margt. Þetta er ekki lítið mál, langt því frá.
Bjössi: Svo kemur maður heim og kærastan er búin að bíða ég veit ekki hvað lengi.
Sölvi: Maður verður bara eitthvað geðveikur!
Bjössi: Það er betra að eiga ekki kærustu þegar maður fer á túr.
Sölvi: Ég veit það. Ég átti kærustu síðast þegar ég fór á túr og það var bara allt annað, allt, allt annað. Maður þurfti alltaf að vera að hringja og svona.
Bjössi: Já, en þegar maður á ekki kærustu þá er það bara rokk og ról og fokkitt.
Um handleggsbrotinn Þröst
Bjössi: Síðasti staðurinn sem við spiluðum á var Manchester og þar lentum við í slag við fótboltabullur. Við vorum bara eitthvað uppi á hótelherbergi og langaði til að fara út að gera eitthvað, svo við fórum á næsta bar og það kom á daginn að þetta var mesta fótboltabullubúllan í bænum. Þröstur var í leðurbuxum og hlýrabol og um leið og hann mætir inn þá veður einhver gaur upp að honum og fer að dansa við hann og nudda sér utan í hann. Þröstur bara ýtir honum af sér og þá var þetta managerinn á staðunum.
Sölvi: Var þetta þá bara einhver fleimíng gey gæi?
Bjössi: Þetta var bara einhver fleimíng kreisí gæi sem var bara að reyna að fara í slag við Þröst. Við komum þarna inn, allir eitthvað ferlega rokkaðir, en gaurarnir þarna voru allir með kangool húfur ...
Sölvi: Voru þetta svona þögg gaurar.
Bjössi: Já, svona þögg, fokked öpp gaurar. Svo allavega ... Þresti var hent út og þegar við komum út þá er bara hringur utan um hann og hann svona með hendurnar á lofti. Þegar við komum út þá urðu gaurarnir frekar skrítinir. Þeir hafa kannski haldið að við myndum nefbrjóta þá eða eitthvað... en allavega, Þröstur kýldi gaurinn og braut á sér hendina og svo lagaði hann hana ekkert. Hann fór allan túrinn án þess að laga á sér hendina. Hann er svo kærulaus þessi hálfviti. Við alltaf bara Hvað er þetta? Þá var beinið alveg bogið, alveg dúúúúúú. Svo förum við með hann til læknis og læknirinn bara ! Heyrðu, þú veist... þú ferð bara heim núna. Við erum að tala um að háræðarnar voru komnar í klessu og eftir svona mánuð hefði hann ekki getað notað hendina neitt lengur. Hann eitthvað hööö? Var búinn að bryðja tælenol í mánuð.
Sölvi: Hvernig er hægt að vera handleggsbrotinn í mánuð?
Bjössi: Æi hann var bara alltaf eitthvað ... Ég geri bara eitthvað í þessu seinna, fer til sérfræðings á morgun.
Um flugþreytu
Sölvi: Maður verður geðveikur af því að fljúga tíu sinnum í viku. Alveg fokking geðveikur. Maður fær ofskynjanir og allskonar þannig dót.
Bjössi: Jáh!
Sölvi: Maðurinn er ekkert gerður til þess að vera í þrjátíu og þrjúþúsund feta hæð.
Bjössi: Nei, það er bara í vissan tíma sem maður meikar það.
Sölvi: Einmitt!
Um leiðinlegan túrmanager
Sölvi: Við vorum að túra með leiðinlegasta túrmanager í heimi. Þetta var Ameríkani. Svona Ameríkani sem allir utan Ameríku elska að hata. Hann representeraði allt það versta við vondan Ameríkana.
Bjössi: Nei?!
Sölvi: Besta dæmið um þetta var þegar hann fékk kast út af mjólk sem var ekki búin að vera inni í ísskáp. Hann heldur að ef mjólk sé lengur en tíu mínútur utan ísskáps þá breytist hún í banvænan vökva.
Bjössi: Já, er það!?
Sölvi: Einu sinni skildi ég mjólkina eftir utan ísskáps og það voru allir ógeeeðslega tjillaðir á því, en þegar hann vaknaði þá snappaði hann og var tilbúinn til þess að ráðast á okkur alla. Við bara Þú ert fokking geðveikur!!... og eftir það gekk gaurinn undir nafninu The Milk Fit Guy.
Um Ameríkana
Sölvi: Ameríkanar hugsa allt öðruvísi en Evrópubúar. Ef það er eitthvað vandamál í gangi þá hópa þeir sig alltaf saman og ræða um það fram og til baka, en við erum bara: Við reddum þessu bara núna!
Bjössi: Nákvæmlega!
Um gras úr epli
Bjössi: Einn gaurinn sem túraði með okkur um Bandaríkin var stór og feitur Mexíkani með tagl. Hann reykti sko alltaf gras úr epli. Hann gerði ekkert nema að vera freðinn.
Sölvi: Já, nákvæmlega. Það var einn svona með okkur.
Bjössi: Hann var bara alltaf freðinn.
Sölvi: Já, einmitt. Sá sem var með okkur var búinn að gera þetta í ellefu ár. Þetta var hans normal ástand. Ef hann væri ekki skakkur þá myndi maður verða stressaður, af því að þannig var hann óeðlilegur.
Um framtíðina og að lifa á þessu
Sölvi: Hvenær farið þið aftur út?
Bjössi: Sko, næst þegar við förum út þá förum við örugglega ekki að spila heldur bara svona bissness eitthvað.
Sölvi: Já.
Bjössi: Kynnast svona lawyers og svona fyrir Evrópu. Við erum með dreifingarsamning hjá Victory Records, síðan erum við í samningaviðræðum núna við ýmis fyrirtæki í Evrópu sem myndu þá bara sjá um Evrópu.
Sölvi: Er Victory ekki leibellinn hjá Mínus?
Bjössi: Ekki þannig séð. Við höfum eiginlega aldrei verið neitt ánægðir með Victory Records. Við erum náttúrulega bara hjá Smekkleysu. Undanfarið hálft ár til eitt ár þá er þetta búið að vera smá svona vesen með samninginn og við viljum fá nýjan umboðsmann. Bara dú it ræt. Við viljum fá einhverja peninga, bara aðeins að ... þú veist ... skilurðu ... Maður þarf að lifa á þessu sko, en ef tónlistarmenn ætlast til þess að fá að lifa á þessu þá kallar fólk þá bara freka.
Sölvi: Já, ég veit.
Bjössi: Þeir eiga bara að liggja í ræsinu, kannski fá ölmusu af og til.
Sölvi: Já, ég veit alveg ... þessi harðkjarna sena í dag, Mínus er eitthvað svona vúúúúú! Eitthvað svona dikks.
Bjössi: Já, við höfum alltaf verið dikks en okkur langar bara að gera þetta rétt núna, kýla bara á þetta.
Sölvi: Það er ekki þannig að ef einhver kallar mann hálfvita þá sé bara allt óver. Þú ert bara á þinni ferð og annaðhvort kemur fólk með eða ekki.
Bjössi: ... og ef ekki þá er maður bara að gera eitthvað vitlaust.
Sölvi: Nákvæmlega!
Um umboðsmenn
Sölvi: Þú átt að hætta að hlusta á fólkið í bransanum.
Bjössi: Er það?
Sölvi: Jaaááá, þetta er fólk sem tekur sjötíu prósent af öllu sem þú gerir og það verður einn fimmti af öllu sem þú vinnur þér inn.
Bjössi: Já, sjitt.
Sölvi: Spáðu í því skilurðu, það er meira en einn meðlimur í bandinu. En þetta er samt fínt ef þið eruð með góðan umboðsmann sem hefur eitthvað viðskiptavit og er að vinna vinnuna sína. Flestir umboðsmenn eru samt algerir fávitar. Þeir verða virkilega að skilja bandið og vita út á hvað það gengur, annars eiðileggja þeir eiginlega bara fyrir því. Ef einhver er að taka tuttugu prósent af tekjunum þínum þá skal hann FOKKING fá að vinna fyrir því!
Bjössi: Já vá, maður er ekkert að gefa fólki hundraðkalla fyrir að gera ekki sjitt.
Sölvi: Við vorum einu sinni með umboðsmann sem var svona eins og vond blanda af umboðsmanninum hans Joey í Friends og umboðsmanni Fraiser.
Bjössi: Hva? Gellan þarna?
Sölvi: Já, konan. Þetta er bara mest skerí fólk sem þú hittir skilurðu?! Eins og í einhverju sit-com. Alltaf með eitthvað Hollywood neim droppíng kjaftæði ... -Ég þekki þennan og þetta, svo þegar hann hittir þessa sem hann var að tala um þá er það bara Ha? Hver ert þú?
Um mannrán og Led Zeppelin þotuna
Sölvi: Svo eru náttúrulega snillings umboðsmenn eins og umboðsmaður Led Zeppelin.
Bjössi: Peter Grant? Hann var snillingur. Ég hef lesið ævisögu túrmanagersins, þú verður að lesa hana! Þetta er magnað! Túr managerinn sá um allt maður. Rosalegur. Hann reddaði öllu, heróíni og kókaíni ...
Sölvi: Er það? Ég hélt að þeir hefðu alltaf átt að vera svo klín, ekki alveg klín en samt ekki heldur að taka Stones pakkann ...
Bjössi: Nei, blessaður maður. Jimmi Page var á heróíni í sjö ár. Hann var alveg hellaður.
Sölvi: Já, spáðu í þessu ... og þeir voru með þotu Hey, við verðum að fara að drífokkur, við þurfum að ná þotunni okkar!
Bjössi: Já, þeir tóku líka fullt af fjórtán ára stelpum og flugu bara með þær í næsta bæ á þotunni. Þær síðan bara eitthvað ööööööö, far avei from hóm ... Við settum svona skilti á rútuna okkar að enginn undir 21 árs mætti fara í hana, hvorki stelpur né strákar. Þetta er bara svona í Bandaríkunum. Ef foreldrarnir koma og segja að hann eða hana hafi ekki langað til að fara þarna inn þá er hægt að súa þig fyrir mannrán.
Sölvi: Djösh!
Um kyntröll, gellur, grúppíur og Gauk
Bjössi: Hvernig hvaaaa ... hvernig var þetta hjá ykkur þarna, voru einhverjar grúppíur? Við þurfum aðeins að spæsidd upp! Voru einhverjar kellingar þarna?
Sölvi: Uuuuuuu, ég veit það ekki, hva ....
Bjössi: Fékk einhver að ríða, segðu bara já eða nei.
Sölvi: Já, það fékk einhver að ríða en ég náttúrulega er lofaður og loka augunum fyrir öllu svona.
Bjössi: Já, ég líka.
Sölvi: Mér finnst bara gaman að heyra sögurnar einu sinni.
Bjössi: Já, ég skil þig.
Sölvi: En sko, ég hef reyndar sagt það áður ... ekki þér reyndar ... en Gaukur, sem spilar stundum á bassa með Quarashi, hann var vinsælasti maður ferðarinnar! ... sem enn og aftur kemur inn á það að stelpur eru komnar með leið á söngvurum og gítarleikurum og vilja núna bara bassaleikara.
Bjössi: Er það!?
Sölvi: Það er eitthvað við þennan djúpa tón sem kemur þeim til. Allavega tókst Gauki að komast yfir konur af öllum kynþáttum, öllum trúarbrögðum, öllum ríkjum Bandaríkjanna og af allri stærð. Hann bara nýtur vinsælda hjá kvenþjóðinni á allan hátt.
Bjössi: Í þessu viðtali kemur hann semsagt út sem konungur grúppíanna.
Sölvi: Konungur grúppíanna!
Bjössi: Halelújah Gaukur! Halelújah!
Sölvi: Hann líka. .. stelpur bara ... sama hvernig þær eru, þær bara detta inn í hann. Þessvegna köllum við hann Negra Norðursins!
Bjössi: Hann er líka hress strákur, svona opinn og þannig.
Sölvi: Einmitt!
Um ást á Krumma
Sölvi: Hver er kóngurinn í bandinu Mínus?
Bjössi: Sko ééégggg, æi ég veit það eiginlega ekki. Frosti er náttúrulega rosa sætur, það er alltaf reynt við hann. Ég man að við vorum einu sinni eitthvað að labba og þá kom einhver stelpa og spurði hvað hann væri hár, bara svona til að brjóta ísinn. Ég hef bara aldrei kynnst öðru eins ... hahahahh ... Hvað ertu hár!
Sölvi: Krummi er náttúrulega svona rokk star, hann er alveg living it öpp.
Bjössi: Hann er living it öpp og hann er bara ... Hann er alveg ótrúlegur karakter og þessvegna elska ég hann.
Um slagsmál
Sölvi: Hahahaha ... eruð þið ekki alltaf að slást eða eitthvað? Hver slæst?
Bjössi: Sko, þessir sem slást það eru Þröstur og Krummi. Við fórum í smá slag í New Orleans. Það varð allt vitlaust þar ... Þröstur var eitthvað að labba ber að ofan og löggurnar eitthvað ... æi ... ég er hræddur um að segja of mikið.
Sölvi: Let it oll gó men!
Bjössi: Æi ég veit það ekki ... ég var allavega edrú. Ef þú ert handtekinn í Bandaríkjunum þá er hægt að senda þig með fyrsta flugi heim. Þröstur var bara ekkert að reyna að vera neitt soft við löggurnar og þeir voru bara komnir með hendurnar á byssurnar. Svo bara slapp hann allt í einu og ég skil ekki hvernig. Hann bara slapp!
Sölvi: Þröstur stendur eiginlega fyrir allri rokk sköddunuinni í bandinu.
Bjössi: Já vá, eins og þetta með hendina og svona. Hann er með glóðarauga núna ... það var stelpa sem kýldi hann!
Sölvi: Já, er það? Reyndar sko ... Steini hefur lent í þessu líka. Stelpur nefninlega sko, ef maður fer yfir einhverja vissa línu, þá er maður bara buffaður!
Bjössi: Já, ég veit það.
Sölvi: Steini var eitthvað að rugla í einhverjum kvenmanni og það komu bara fimm og buffuðu hann bara, sátu á honum. Hann kom bara hlauuupandi út af Prikinu og þurfti bara að keyra út úr bænum maður!
Bjössi: Ég lenti líka í þessu einu sinni. Ég var bara að keyra eitthvað með Andra og svona stelpur ... þær gera þetta kannski ekki eins mikið í dag ... en þegar þær eru svona sautján, átján ára þá verða þær oft alveg rosalega emósjónal þegar þær drekka. Fara stundum bara að gráta og svona.
Sölvi: Já, já.
Bjössi: Ég var eitthvað að spá í þessu og labba upp að einni stelpu sem situr svona niðri, pikka eitthvað í hana og spyr Af hverju fara stelpur alltaf að gráta. Þá er hún að gráta maður og horfir á mig og segir ógeðslega agressív Hva, ert þú eitthvað að segja að ég sé að gráta!? Og ég alveg Neineinei ... neinei. Svo stendur hún upp og kýlir mig bara og áður en ég veit af eru allir vinir hennar komnir og allar vinkonur hennar og allar stelpurnar á Laugaveginum og þær fara allar að hlaupa á eftir mér. Ég var alveg að hlaupa maður ... þetta var svona eins og í Benny Hill, manstekki?
Sölvi: Jú, jú...
Bjössi: ... og ég hleyp svona áfram niður Laugaveginn og tókst að fela mig í runna en svo kemur þessi stelpa með vini sínum og hann rífur mig svona upp á hálsinum og ég var alveg í lausu lofti. Þetta var alveg rosalegt! Þessvegna get ég alveg verið mjög hræddur við kvenmenn. Kvenmenn geta alveg verið mjög vondir.
Sölvi: Já, ég er með kenningu um þetta. Ef þú lest Njálu, þar eru bara blóðþyrstar konur sko. Hallgerður Langbrók og svona.
Bjössi: Ég held að þetta hafi ekkert breyst.
Sölvi: Ég held að það sé alger misskilningur að karlar séu eitthvað meira agressívir en konur. Þeir bara pæla kannski aðeins minna í því. Bara kýla næsta mann, en þær svona Ég ætla að drepa þig, en ég ætla að hugsa ógeðslega vel um það og gera það ógeðslega kúl.
Bjössi: Það er miklu meiri niðurlæging. Hvað þá þegar allir sjá það! Konur eru samt alveg yndislegar ... hahaha ... Þú ert lofaður er það ekki?
Sölvi: Jú, ég er lofaður.
Bjössi: Ertu búinn að vera það lengi?
Sölvi: Neeei, ekki lengi.
Bjössi: En er Sölvi hamingjusamur?
Sölvi: Jaaaááá ...
Bjössi: En er Sölvi hamingjusamur í rokkinu?
Sölvi: Jaaaááá, þetta er hark, en þetta er samt skárra en t.d. að vera markaðsstjóri hjá einhverju netsíðufyrirtæki, eða fasteignasali, eða að vera í Viðskiptaháskólanum.
Stundum spyr maður sig af hverju er maður að harka í þessu fyrir svona lítinn penging, en ef maður vildi græða pening þá myndi maður bara gera einhverja klámsíðu.
Um ömurlegar vinnur
Sölvi: Hvað gerirðu, fyrir utan það að vera í bandi?
Bjössi: Ég var að vinna á leikskóla, en núna er ég að kenna nokkrum fjórtán ára strákum á trommur. Það er frábært. Þeir bara byrjuðu að hringja í mig, svo setti ég upp nokkrar auglýsingar og núna er ég kominn með sjö nemendur. Þetta er bara gaman. Ég er reyndar búinn að gera ógeðslega mikið, er meistari í ömurlegum vinnum. Ég hef unnið hjá allavega fjórum múrurum... og þar hef ég alltaf verið kallaður strákurinn Strákurinn á að geridda ... strákurinn ... svonah! ... Hjá bænum ... Svo vann ég í Sómasamlokum ...
Sölvi: Sómasamlokum?
Bjössi: Já, Sómasamlokum. Það er örugglega það versta sem ég hef gert. Ég steikti örugglega sjöhundruð hamborgara á dag.
Sölvi: Talandi um vond störf.
Bjössi: Sómasamlokur, það var það versta. Yfirmaðurinn minn var mjög vondur við mig. Til dæmis fór ég einu sinni á grímuball, var klæddur sem kona og fór að tala við kúnnana og daginn eftir ætlaði yfirmaðurinn að reka mig af því að hann hélt því fram að ég hefði verið að reyna við kúnnana. Ég var reyndar mjög kvenlegur. Svo hef ég unnið hjá Landspítalanum, í uppvaski.
Sölvi: Hey, ég líka!
Bjössi: Ég var reyndar á Landakoti.
Sölvi: Já, ég var á Landspítalanum. Þetta var fokking helvíti. Taktu músikina hans Harðar Torfa og hentu saman við einhverju Færeysku dralsi og þá ertu kominn í pjúra helvíti. Þetta er það versta sem ég veit um. Seinna var ég hækkaður í tign og var settur á vaktina. Þá var ég látinn sendast með piss og flytja lík ...
Bjössi: Hefðurðu flutt lík?!
Sölvi: Jájá ...
Bjössi: Nautsjh ...
Sölvi: Svo vorum við félagi minn einu sinni sendir til að ná í fót og henda honum í ruslið. Fóturinn var geðveikt þungur.
Bjössi: Og var hann í poka?
Sölvi:: Já, já, í poka, innsiglaður og svona. Þú myndir aldrei trúa því hvað einn fótur er fokking þungt fyrirbæri.
Bjössi: Sjiiittthhhh...ohhhh...
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2006 | 10:43
Saga Metallica

Hljómsveitameðlimir:
James Alan Hettfield Rythmin gítar, söngur.
Kirk Lee Hammett: Lead gítar, bakraddir.
Robert Trulijo: Bassi, bakraddir.
Lars Ulrich: Trommur.
Fyrrum hljómsveitameðlimir:
Ron Mcovery: Bassi
Clifford Lee Burton: Bassi
Jason Netswed: Bassi
Dave Mustaine: Lead gítar.
Tímabil:
1981-enn í gangi.
Diskar
Kill Em All (Júlí, 1983)
Ride The Lightning: (Ágúst, 1984)
Master Of Puppets: (3. Mars, 1986
...And Justice For All: (25. Ágúst, 1988
Metallica: (Black Album) (13, Ágúst, 1991)
Load (4. Júní, 1996)
Reload: (18. Nóvember, (1997)
Garage INC. (24. Nóvember, 1998)
S&M: (23. Nóvember 1999)
St. Anger: (5. Júní 2003)
Metallica er ein stærsta hljómsveit sögurnar og hefur sigrað metal heiminn síðustu 25 ár.
Þeir hafa gefið út margar frábærar plötur sem hafa selst í tæpum 100 milljónum eintaka víða um heim.
Þeir hafa átt sín góðu tímabil og hafa farið mikið niður um leið.
Flestir ættu að þekkja lög eins og Enter Sandman og One.
Metallica er ein áhrifamesta hljómsveit sem uppi hefur verið og hafa margar tónlistastefnur verið fyrir áhrifum frá þessari hljómsveit. Þeir risu upp í fyrri hluta níunda áratugarins ásamt hljómsveitum eins og Megadeth, Slayer og Anthrax.
Ég ætla í þessari ritgerð að segja ykkur frá þessari sögufrægu hljómsveit.
Allt byrjaði þetta þegar trommarinn Lars Ulrich lýsti eftir einhverjum til að stofna með sér hljómsveit. Það var James Hettfield sem svaraði og var þar hljómsveitin metallica komin. Á árinu 1981 voru mikil skipti á meðlimum en loks árið 1982 fundu þeir á bar Cliff Burton og sienna Dave Mustaine. Þetta var lineupið þar til 1983 þegar þeir ráku Dave vegan þess að þeim fannst hann ekki einbeita sér nóg að tónlistinni.
Umboðsmaður þeirra benti á gítarleikara hljómsveitarinnar, Exodus, Kirk Hammett. Þeir ákváðu að hringja í hann og hann samþykkti. Þeir voru búnir að taka upp eitthvað efni en tóku það bara aftur upp og þá með Kirk. Þá gáfu þeir plötuna Kill Em All. Þessi plata var mjög svo góð og frábær byrjun. Þeir fylgdu plötunni eftir í smátíma og fóru svo beint aftur í stúdíóið að taka upp næstu plötu. Þessi plata var Ride The Lightning. Sú plata var enn betri og innihélt hún lögin For Whom The Bell Tolls, Fade To Black og fleiri. Þessi plata gerði þá miklu frægari og veitti þeim fleiri möguleika. En þeir voru að koma með trash metalinn upp á yfirborðið með þessum plötum. Trash metal er týpa af metal undir áhrifum af pönki og er mjög aggressív tónlistastefna og textarnir voru fullir af reiði og sama mátti seigja um viðlagið.
Þegar hér er komið, 1986, gáfu þeir út sína næstu plötu: Master Of Puppets. Þessi plata var þeirra besta verk hingað til og seldist hún í einni milljón eintaka á smátíma. Þess plata hélt klassíkina battery, master of puppets og sanitarium. En þá gerðist það í nóvember 1986 þegar þeir voru að túra að þeir lentu í rútuslysi og rútan sem þer voru í valt. Þetta var endalok Cliff Burton en hann lenti undir rútuni.
Þarna voru þeir næstum hættir en ákváðu að halda áfram og hugsuðu að Cliff hefði viljað það.
Þeir fundu nýjan bassaleikara, Jason Newsted, Sem var með þeim á næstu plötu þeirra, ...And Justice For All, Sem enn sló við þeim fyrri með stórslagaranum, One. Þeir gerðu sitt fyrsta myndband við þetta lag og eftir það urðu þeir enn frægari og fóru að spila í stærri höllum og leikvangum. Þeir túruðu mjög lengi eftir þessari plötu eða um tvö ár. Eftir það komu þeir heim til að taka upp sína stæðstu plötu. Metallica, sem fékk viðurnefnið Black Album. Þarna voru hver frábæru lögin eftir öðru. Þar á meðal Enter Sandman sem sló í gegn um allan heim. Þessi plata kom þeim á toppin um allan heim. Þeir fóru í annan langan túr og fóru svo í frí. En þeir komu ansi breyttir úr þessu fríi, Þeir voru búnir að klippa sig og komnir í fínni föt en þeir voru þekktir fyrir töraleg föt. Þarna kom stórt stökk niður ,að mati flestra, með plötunni Load, sem var alveg ágætis plata en ekki bara sama metallica og fólk átti að venjast. En þarna voru þeir farnir að færast aðeins út í nu metallin. (Týpa af metal þar sem alls konar tæknibrellum er bætt við og rapp var farið að blandast með)
En þeir sukku enn dýpra með plötunni Reload sem er talið þeirra versta verk.Þeir misstu ansi mikla virðingu og þar sem þeir lentu í deilum við Napster fyrirtækið þegar þeir sáu að þeir hafi tekið efni af þeim og sett á netið misstu þeir stóran hóp aðdáenda.
En þeir héldu áfram og gáfu út nýjan disk, Garage INC, Sem reyndar var samansettur af tveim plötum. Einni smáskífu sem kom út 1987 og svo nýju efni. Þessa plata var bara sæmileg. En í staðin fyrir að túra sérstaklega fyrir þessa plötu þá fóru þeir í túr með Sinfóníunni frá San Fransisco. Og frá því ferðalagi ggáfu þeir út plötuna S&M sem var upptaka af tónleikunum.
Eftir þetta kom upp vandamál. Jason .bassaleikarinn, hætti þar sem hann leið ekki endalaust hvað hann var útundan í hljómsveitinni. James fór vegna álkóhólistavandamála. Margir héldu að hljómsveitin væri hætt og hún var það næstu því. En dag einn kom James aftur hress og tilbúinn.
Þeir fóru að leita að nýjum bassaleikara og fundu fyrrum bassaleikara Ozzy Osbourne ,Robert Trulijo. Þeir komu sér þá loksins aftur upp í stúdíó að taka upp plötuna St. Anger. Sú plata var frekar slöpp en allaveganna sýndi hún endurkomu risanna. Þeir túruðu um heiminn og komu meðal annars hingað til Íslands.
Síðustu tvö ár hafa þeir verið í fríi en í byrjun þessa árs komu þeir með fréttir um að þeir væru eitthvað að dunda sér við í stúdíóinu og fólk gæti átt vona nýrri plötu í lok ársins eða næsta ár. Og við getum beðið spennt eftir henni.
Tónlist | Breytt 22.9.2006 kl. 12:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.9.2006 | 10:33
Saga AC/DC
Þessi snilldar gítarleikari var fæddur í Glasgow, Skotlandi 31. mars 1955. Hann er yngstur af Young fjöskyldunni. Þegar hann var aðeins 2 ára flutti hann og fjölskylda hans frá Skotlandi í úthverfi í
Sydney. Hann hefur spilað á gítar síðann hann var 9 ára. Hann hætti í skóla þegar hann var aðeins 15 ára því hann vildi frekar vinna fyrir hljómsveitar dóti. Takmarkið hans: Að verða rokkari. Fyrsta hljómsveitin sem hann stofnaði var kölluð "Tantrum". Kvöld eitt þegar hann hélt tónleika, gerði Angus
allt vitlaust, sérstaklega með hlaupum sínum fram og til baka á sviðinu, þetta fræga "duck walk" eins og það er kallað en hann tók það upp eftir Chuck Berry, en Angus hafði verði mikill aðdáandi hans. Á þessum tónleikum tók Malcolm (bróðir hans) eftir hæfileikum hans og fékk hann strax við liðs við sig í nýju
hljómsveitina sína: AC/DC. Hugmyndin af því að vera í skólabúning á sviði kom frá systur þeirra. Þegar Angus var ennþá lítill, þá hafði hann aldrei tíma til að skipta um föt áður en hann fór á hljómsveitar æfingu. Þá spurði systir hans: "Afhverju klæðistu ekki bara skólabúningnum á sviði" Síðan þá hefur hann
alltaf verið í skólabúning á sviði. Hann spilar á Gibson SG 1968.
--------------------------------------------------------------------------------
Malcolm Young (Rhythm Guitar)
Malcolm var fæddur í Glasgow, Skotlandi 6. Janúar, 1953. Hann er eldir bróðir Angusar, hann hætti í skóla mjög snemma til þess að fara að vinna. Það var eldri bróðir han George sem gaf honum gítar bakteríuna. Sem síðan Malcolm gerði við Angus. Af sjálfsögðu fékk Angus sinn fyrsta gítar frá Malcolm. Áður en Malcolm stofanði AC/DC ásamt bróður sínum, spilaði hann í hljómsveit sem hét "The Velvet Undergrounds". Hans tónlistar áhrif koma frá Rolling Stones og síðan kemur mikið úr jazz-i, svo dæmi sé tekið Louis Armstrong.
Malcolm er af mörgum talinn vera heilinn á bak við hljómsveitina. Hann hefur ásamt bróður sínum samið öll lög hljómsveitarinnar. Hann notar Gretcsh Firebird með mjög þykkum strengjum og hann er einn sá besti takt gítar spilar í heimi.
--------------------------------------------------------------------------------
Bon Scott (Ex-Singer)
Bon Scott (Ronald Belford) var fæddur 9. júlí 1946. Hann er upprunalega frá Skotlandi, en hann flutti til Ástralíu þegar hann var 4 ára. Hann hélt sér uppi með littlum vinnum. Þó hann hafi ekki verði mjög
hæfileikaríkur í skóla þá féll hann fljótlega fyrir tónlist og byrjaði að spila á trommur þegar hann var 15 ára. Áður en hann gekk til liðs við AC/DC, þá söng hann fyir nokkrar hljómsveitir eins og Spectator og The Valentines. Í fyrstu vildu Young bræðurnir fá hann á trommurnar en seinna sannaði Bon Scott sig sem mjög góðan söngvara líka. Kona hans var alltaf að biðja hann um að semja lag um sig þannig að hann samdi lagið "She's got balls". Örlitlu seinna skildi hún við hann. 20. febrúar 1980 dó Bon Scott í London. Eftir
nótt þar sem mikið var drukkið og hann var fundinn í bíl vinar síns, en þar hafði hann drukknaði í sinni eigin ælu. "Okkur leið eins og við hefðum misst meðlim úr fjölskyldunni", sagði Angus.
--------------------------------------------------------------------------------
Brian Johnson (Singer)
Brian fæddist þann 5.október, 1948 í Newcastle. Áður er hann byrjaði með AC/DC, hann söng í hljómsveit sem hét "Geordie",
aðalega þekkt í Englandi. Það var hann sem þurfti að fylla upp í skarðið sem Bon hafði látið eftir sig.En Brian gerði það vel. Það fyrsta sem hann gerði með AC/DC var platan Back in Black, og hún varð þeim
til mikilla framfara og var mest selda plata á þeim tíma og náði fyrsta sæti á mörgum listum. Brian's (sem er mikið fyir bjórinn)
fær áhrif frá Joe Cake og Ray Charles
--------------------------------------------------------------------------------
Phil Rudd (Drummer)
Hann var fæddur 19. maí, 1954 í Melbourne, Ástralíu. Áður en hann byrjaði sem trommari hjá AC/DC, spilaði
Phil í hljómsveit sem hét "The couloured balls". Hann byrjaði fyrst með AC/DC árið 1975 en hætti með þeim
árið 1983 eftir mikil rifrildi við Malcolm. Tveir aðrir trommara reyndu að fá stöðuna hans: Simon Write og
seinaa Chris Slade. Þrátt fyrir að vera mjög góðir trommarar gat hvorugur þeirra fengið stöðuna sem
trommari hljómsveitarinniar. Seinna eða 10 árum síðar, kom Phil aftur til hljómsveitarinnar fyrir gerð
plötuna "Ballbreaker" sumarið 1994.
--------------------------------------------------------------------------------
Cliff Williams (Bass)
Cliff var fæddur 14. desember, 1949 í Romford, úthverfi í London. Hann stofnaði sína eigin hljómsveit
sem hét "Home" en þeir hættu fljótt saman síðan byrjaði hann í annari hljómsveit: Bandit. Hann kom síðan
til AC/DC fyrir gerð plötunar Powerage árið 1978. Angus viðurkennir: "Við fengum hann til okkar því að
hann var með fallegt andlit. Þú veist að það er mikilvægt ef þú vilt fá nóg af stelpum á tónleikana."
--------------------------------------------------------------------------------
Chris Slade (Ex-Drummer)
Chris Slade var fæddur 30. október, 1948 í Englandi, þar sem hann á heima enn þann dag í dag. Honum er fyrst
minnst þegar hann spilar með Tom Jones lagið "It's not unusual". Síðan spilaði hann með mörgum mismunandi
hljómsveitum (Tony Hazzard og Tom Paxton, Manfred Mann's Earth Band, Uriah Heep...) áður en hann byrjar
með AC/DC til þess að taka við af Simon Wright. Hann spilaði á "The Razor's Edge" og á þessum heims túrum
(Live at Donington sem kom út árið 1992) Hann er einnig hluti af Big Gun, aðal laginu í myndinni "Last action hero"
(með Arnold Schwarzenegger). Árið 1995, tók Phill Rudd við sæti hans sem trommari og spilaði á "Ballbreaker"
The Beginning
AC/DC var stofnað af Malcolm Young, einu af níu börnum William og Margaret Young. 1971, þegar Malcolm var 15 ára hætti hann í skóla og gekk í bandið Velvet Underground(ekkert tengt bandi Lou Reed), þar sem söngvarinn var Brian Johnson.
Árið 1977 bauð George, bróðir Malcolms, honum og bróðir hans Angus í bandið Marcus Hook Roll Band, til að taka upp plötuna Tales of Old
Granddady. Þetta var það fyrsta sem Angus og Malcolm gerðu fyrir ACDC. Eftir 14 ár og 9 mánuði(aldurinn þegar þú mátt hætta í skóla), hætti Angus í skóla og fór að vinna sem prentari á klámblaði að nafni Ribald. Þegar Velvet Underground hætti starfsemi var Malcolm ákveðinnn í að stofna band með einum gítarleikara og hljómborðsleikara, en hann skipti síðan um skoðum og ákvað að hafa tvo gítarleikara og réði Angus sem hinn gítarleikarann. Réði hann svo Colin Burgess sem trommara en hann hafði spilað í nokkrum böndum áður, svo gekk bassaleikarinn Larry Van Knedt til liðs við þá og að lokum söngvarann Dave Evans. Nafnið AC/DC, kemur af ryksögu sem móðir bræðranna átti, en það er skammstöfun fyrir Alternating Current/Direct Current.
Fyrstu tónleikar þeirra voru á litlum klúbbi í Sydney sem kallast Chequers. Þeir spiluðu cover lög eftir Bítlana, Chuck Berry og Rolling Stones. AC/DC var fædd!
It's A Long Way To The Top
Næstu 6 mánuði voru miklar mannabreytingar í hljómsveitinni. Í staðinn fyrir Colin Burgess komu Ron Carpenter, Russel Coleman og Peter Clack hver á fætur öðrum meðan að Rob Bailey kom í staðinn fyrir Larry sem bassaleikari.
Í júní 74 tóku AC/DC fyrstu lögin sín upp, en þetta voru lögin 'Can I Sit Next To You Girl' og 'Rockin' In The Parlour' . Núna voru meðlimirnir Malcolm Young, Angus Young, Dave Evans, Rob Bailey og Peter Clack. Þá fóru þeir á tónleikaferðalag til að spila á klúbbum, þeir spiluðu m.a. á Hard Rock Café sem Michael Browning átti og gerðist hann framkvæmdarsjóri sveitarinnar. Hann tók þá margar ákvarðanir fyrir sveitina, sú fyrsta og stærsta var að ráða mann að nafni Ronald Belford Scott í sveitina, kallaðan Bon Scott eða Bon. Þeir leyfðu honum að spreyta sig sem trommara og söngvara og eftir það tók hann sæti Dave Evans sem söngvari sveitarinnnar. Í janúar 75 tóku þeir upp sína fyrstu plötu, sem fékk nafnið High Voltage. Hún var tekin upp á 10 dögum og kom út í febrúar sama ár. Þá voru liðsmennirnir Malcolm Young, Angus Young, Bon Scott, George Young (á bassa) og
Tony Kerrante (á trommum). Fyrsti singullinn af plötunni, Baby Please Don't Go, var nokkuð vinsæll í Ástralíu.
Að lokum var uppröðunin á liðsmönnunum endanleg, en inn komu Phil Rudd(á trommum), og Mark Evans (á bassa) og önnur plata þeirra, T.N.T. kom út í lök ársins 75, það var stór áfangi, því platan seldist í yfir 100.000 eintökum og AC/DC voru orðnir stærsta rokkband Ástralíu.
Dirty Promises
Vinsældir þeirra í Ástralíu jókust hraðar en þá hafði nokkurn tíman grunað. Tilraunir þeirra til að ná vinsældum um allan heim höfðu ekki enn borið ávöxt, en til að ná þeim þyrftu þeir að gera stóran plötusamning við stóra útgáfu, en Michael Browning sá við því, hann hafði samband við Atlantic Records og AC/DC skrifuðu undir stóran samning við fyrirtækið um vorið 76. Þeir ákváðu síðan að fara til Bretlands til að öðlast meiri frægð, þeir komu til Bretlands 1. apríl 76.
Þriðja plata þeirra, Dirty Deeds Done Dirt Cheap, kom út, og fyrsti singulinn á þeirri plötu, Jailbreak, náði miklum vinsældum. Í júlí 76 spiluðu þeir vikulega á Marquee klúbbnum og mættu um 1.000 manns á hvert gig. 29. ágúst sama ár spiluðu AC/DC á sínum stærstu tónleikum til þessa á Reading tónlistarhátíðinni fyrir framan 15.000 manns.
Í desember sama ár kom Dirty Deeds Done Dirt Cheap út í Bretlandi, en útgáfan innihélt ekki Jailbreak og R.I.P.(Rock In Peace), en í staðin komu Rocker, af T.N.T. plötunni og áður óútgefið lag, Love At First Feel, sem kom út sem singull í janúar 77. Í desember 76 flugu þeir aftur heim til Ástralíu, og var þeim vel tekið. Þeir tóku sér stutta pásu í kringum jólin og fóru síðan að taka upp sína 4. plötu, Let There Be Rock, í Albert stúdíóinu í Sydney. Eftir nokkur gig í Melbourne, Sydney og Adelaide héldu þeir til Bretlands á stutt tónleikaferðalag sem þeir fylgdu síðan eftir með Evróputúr ásamt Black Sabbath. En Malcolm og Geezer Butler, bassaleikara Black Sabbath kom mjög illa saman og AC/DC var sparkað úr túrnum svo þeir snéru aftur til Bretlands.
Í lok júni 77 ákvað Mark Evans að hætta, Michael Browning mælti með því að ráða Cliff Williams og var það gert.
Hello America
Næsta skref var að fara til Ameríku. Breska útgáfan af High Voltage var gefinn út í Ameríku í október 76 og Let There Be Rock í júní árið eftir. Fyrsti Bandaríkjatúr þeirra byrjaði um sumar og endaði um vetur. Stærsta gigið var í Hollywood Spartatorium og voru 13.000 manns mættir til að sjá þá.
Í nóvember og desember hituðu þeir upp fyrir Rush og Kiss.
Eftir nýárs fríið í Ástralíu fóru þeir í Albert stúdíóið og tóku upp plötuna Powerage. Hún kom út 28. apríl í Bretlandi og komst upp í 26. sæti á lista yfir söluhæstu plötur.
Powerage heimstúrinn byrjaði 26. apríl í Bretlandi og síðan fóru þeir til Bandaríkjanna og spiluðu meðal annars með Rainbow, Savoy Brown, Alice Cooper,
Journey, Aerosmith, Scorpions og UFO. Þeir spiluðu á nærri 100 tónleikum í Bandaríkjunum, allt frá litlum klúbbum til Day On The Green tónleikahátíðarinnar í San Francisco. Eftir þessa tónleikaferð höfðu þeir selt 250.000 eintök af plötunni.
Næsta plata, If You Want Blood You've Got It, var tekin upp í lok ársins 78 og komst í 13 sæti á breska metsölulistanum og komst á topp 50 í Bandaríkjunum en það var í fyrsta skipti sem plata frá þeim komst það hátt vestanhafs.
On The Highway To Glory
Um þetta leyti skiptu AC/DC um próduser, en Eddie Kramer, sem hafði unnið með ekki ómerkari mönnum en Jimi Hendrix, Kiss og Led Zeppelin, var fyrsti valkostur til að pródusera næstu plötu, en það fer ekki allt eins og ætlað var. Robert John 'Mutt' Lange var að lokum valinn til að pródusera plötuna. Og auk þess að skipta um próduser skiptu þeir einnig um stúdíó, færðu sig yfir í Roundhouse Studios in Chalk Farm í London. Þessu fylgdi líka eftir breyting framkvæmdarstjóra. Peter Mensch tók við af Michael Browning. AC/DC, sem höfðu aldrei áður tekið upp efni annars utan Ástralíu, og aldrei verið lengur en 3 vikur, eyddu sex mánuðum í London í að taka upp næstu plötu. Mutt Lange stóð sig prýðilega og platan sem fékk nafnið Highway To Hell fékk góða dóma og var líklega þeirra besta plata til þessa.
Eftir Plötuna fóru þeir á langt tónleikaferðalag, og 18. ágúst 79 spiluðu þeir á sínum stærstu tónleikum til þessa, þegar þeir hituðu upp fyrir meistarana í The Who á Wembley. Þetta gig hjálpaði þeim mikið og hituðu þeir upp fyrir The Who á tónleikum í Evrópu. Fyrir jólafríið í Ástralíu fóru þeir á Evrópu túr sem endaði á tónleikum í París.
En í byrjun ársins gerðist sorglegasti hluturinn í sögu sveitarinnar...
Touch To Much
,,Hinn 33 ára gamli Bon Scott, fannst dáinn síðastliðna nótt í bíl í Dulwich, Suður-London
(BBC Radio London, 21 febrúar 1980)
Þriðjudaginn 19 febrúar fór Bon Scott til Ian Jeffreys, sem skipulagði túrana þeirra, í kvöldmat. Fór síðan um kl hálf 7 á klúbb að nafni Music Machine. Þegar hann lokaði kl. 3 fór Bon með gömlum vini, Alisdair Kinnear. Hann keyrði hann heim en gat ekki komið honum úr bílnum né vakið hann. Hann fór þá heim til sín með hann og reyndi að vekja hann en allt kom fyrir ekki. Hann ákvað þá að skilja hann eftir í bílnum, og fór sjálfur inn að sofa. Þegar hann vaknaði daginn eftir fór hann að athuga Bon, og þá kom í ljós að hann andaði ekki. Hann flýtti sér á King's College spítalann með hann en læknum tókst ekki að bjarga lífi hans og var hann úrskurðaður látinn. Dánarorsökin var talin vera áfengiseitrun.
Back In Black
Fyrstu vikurnar eftir dauða Bon vissu meðlimir AC/DC ekki hvað átti til bragðs að taka, halda áfram án Bon eða hætta. Að sjálfsögðu gætu AC/DC aldrei verið samir án Bons eftir að hann dó. Þegar hann dó, dó partur af hljómsveitinni líka. En Angus og Malcolm vissu að Bon myndi ekki vilja að þeir hættu, heldur myndi hann vilja að þeir héldu áfram að gera góða tónlist.
Og það gerðu þeir, blöðin voru farinn að skrifa um líklega eftirmenn Bon Scotts. Stevie Wright, söngvari Easybeats, Ástrali að nafni Alan Fryer, Englendingurinn Gary Holton, Terry Schlesher, og að lokum Brian Johnson, sem bræðurnir þekktu til voru taldir líklegir til að taka við af Bon. Og að lokum fékk Brian Johnson starfið.
Þá byrjuðu þeir að taka upp 8. plötuna í Compass Point stúdíóinu á Bahamas eyjum undir stjórn John 'Mutt' Lange. Hún var tekinn upp í mars og apríl á alls sex vikum.
1. júlí, þreytti Brian frumraun sína á sviði með AC/DC í Namur í Belgíu. Platan, sem fékk nafnið Back In Black, kom út 31. júlí. Var á toppnum í Bretlandi í 2 vikur í nóvember komst hún í 4. sæti í Bandaríkjunum og var á topp 10. í heila fimm mánuði. Og komst hún í 2. sæti í Ástralíu. AC/DC fóru síðan á sitt fyrsta tónlistarferðalag með Brian, þeir túruðu í Bandaríkjunum í 2 mánuði, síðan í Bretlandi og Ástralíu. Þetta var þeirra fyrsti túr í heimalandinu síðan Dirty Deeds Done Dirt Cheap kom út. Árið 81 byrjaði með fleiri gigum í Japan og Ástralíu.
22. ágúst 81 fengu þeir staðfestingu á því að þeir væru eitt stærsta rokkbandið í heiminum, þeim var boðið að vera aðalnúmerið á Castle Donington Monsters Of Rock hátíðinni.
For Those About To Rock...
Næsta plata, var tekin upp í Paris ásamt John Mutt Lange. Platan, sem fékk nafnið For Those About To Rock (We Salute You), komst í 3. sæti breska metsölulistans og síðan voru 7 plötur AC/DC valdar sem topp 100 þungarokksplötur allra tíma af rokktímaritinu Kerrang! Eftir plötuna fóru þeir á langt tónleikaferðalag og voru nú farnir að spila á stærri stöðum. Eftir tónleikaferðalagið þá voru AC/DC valdir besta bandið af lesendum Kerrang!, Angus besti gítarleikarinn, Cliff besti bassaleikarinn, þeir voru valdir bestir á sviði, og For Those About To Rock besti singulinn, Brian var 3. besti söngvarinn, Phil Rudd næstbesti trommarinn og Let's Get It Up var valinn 16. besti singullinn.
Fire Your Guns
Eftir túrinn 82 tóku AC/DC sér langa pásu áður en þeir fóru að vinna að næstu plötu. Hún var tekin upp í Compass Point stúdíóinu í Nassau. Um miðjar upptökur var Phil Rudd rekinn. Þá voru engar ástæður gefnar fyrir brottrekstrinum en síðar urðu eiturlyfjavandamál Phils ekkert leyndarmál, heldur hreinn sannleikur. Og til að auka vandamálin, þá voru persónulegir örðugleikar á milli Malcolms og Phils. Phil var út!
Platan sem fékk nafnið Flick Of The Switch, sem þeir próduseruðu sjálfir, olli miklum vonbrigðum. Hún komst í 4. sæti í Bretlandi og aðeins 15. í Bandaríkjunum. Og í kosningu Kerrang! Unnu AC/DC engin verðlaun og lentu aðeins í 5. sæti yfir bestu bönd og áttundu mestu vonbrigði ársins. Þá var komið að því að finna nýjan trommara, og eftir mörg áheynarpróf fékk hinn tvítugi Simon Wright starfið. Og í október þreytti hann frumraun sína á sviði í Vancouver í Kanada. Síðan túruðu þeir í Kanada og Bandaríkjunum.
19. ágúst 82 urðu AC/DC fyrsta bandið til að verða stærsta númerið á Castle Donington Monsters Of Rock hátíðinni. Síðan spiluðun þeir á rokkhátíðinni very first Rock In Rio í Brasilíu. Eftir Rock In Rio tóku þeir sér aftur langt hlé.
Back In Business
Það var ekki fyrr en um vorið 85 sem AC/DC fóru að vinna að næstu plötu. Fly On The Wall hét hún og próduseruðu þeir áfram sjálfir. Hún olli líka vonbrigðum og náði aðeins 7. sæti í Bretlandi og fyrsti singullinn, Danger, náði aðeins 48. sæti.
Fly On The Wall túrinn byrjaði í Bandaríkjunum, og í janúar 86 spiluðu AC/DC á 6 tónleikum í Bretlandi og 18 á Evrópu fram að miðjum febrúar. 16. febrúar snéru þeir aftur til Bretlands til að skjóta vídeó fyrir singulinn Shake Your Foundations sem náði 24. sæti.
Maximum Overdrive
Einn stærsti og frægasti aðdáandi AC/DC, rithöfundurinn Stephen King, spurði hvort hann mætti nota AC/DC lög í sándtrakkið á nýrri kvikmynd eftir sögu hans, Maximum Overdrive, og jafnvel taka nokkur ný upp fyrir myndina. Þeir samþykktu það og tóku upp3 ný lög í gamla stúdíóinu í Nassau. Þetta voru lögin Who Made Who,'D.T. og 'Chase The Ace.
3. maí varð Who Made Who þeirra stærsti hittari í nokkur ár. Þeir fóru síðan á smá túr um Ameríku og tóku sér síðan tveggja mánaða frí áður en þeir fóru að vinna að næstu plötu.
That's The Way...
Eftir mikla leit að góðum stað til að taka upp plötuna völdu þeir Miraval í Suður-Frakklandi og byrjuðu þeir í ágúst. Harry Vanda og George Young próduseruðu þessa plötu og voru alls 19 lög tekin upp fyrir hana, en aðeins 10 bestu sluppu inn. Fyrsti singullinn, Heartseeker, var gefinn út 4. janúar 88 og komst í 12. sæti í Bretlandi.
Platan fékk nafnið Blow Up Your Video kom út í lok janúar og komst í 2. sæti í Bretlandi, sem var það besta síðan Back In Black kom út. Í Bandaríkjunum komst hún í 12. sæti.
Eftir 3 daga æfingu í Entertainment Center í Perth byrjaði túrinn í febrúar, þetta var þeirra fyrsta gig í u.þ.b. ár og það fyrsta í Ástralíu síðan 81. Og til að gera þetta enn sérstakara, þá voru Isa og Chick Scott, foreldrar Bons á tónleikunum. Eftir túrinn í Ástralíu höfðu þeir spilað fyrir 130.000 aðdáendur á 3 vikum. Þá lá leiðin til Bretlands en þeir spiluðu aðeins í tvem borgum þar, Birmingham og London. Þá fóru þeir til Evrópu og sneru síðan aftur til Bretlands og kláruðu túrinn með tónleikum á Wembley Arena. Malcolm fór ekki með þeim til Bandaríkjanna því hann þurfti frí frá tónleikahaldi. Þeir leituðu ekki langt til að fá eftirmann hans, bróðir hans Stevie kom í staðinn fyrir hann á Bandaríkjatúrnum og þeir létu eins og ekkert hefði í skorist. Hans fyrsta gig var Cumberland Civic Center í Portland Maine, 3. maí. Á þessum túr var nánast alltaf uppselt á þá og túrinn endaði í lok ársins.
On The Razor's Edge
Þegar næsta plata var í undirbúningi þá sömdu Malcolm og Angus textana án hjálpar Brians. Hann átti við ýmis persónuleg vandamál að stríða þ.a.m. var hann að skilja við eiginkonu sína. En á meðan Angus og Malcolm voru að vinna að nýju efni var Simon boðið að spila á plötu Ronnie James Dio, Lock Up The Wolves. Það var til að hann hefði eitthvað fyrir stafni áður en AC/DC færu í stúdíó. En nokkrum mánuðum síðar var það staðfest að Simon endanlegur meðlimur sveitarinnar hans Dio.
Núna, án trommara, byrjuðu AC/DC að æfa sig fyrir nýju plötuna í hlöðu nálægt Brighton. Í nóvember 1989 fengu þeir Chris Slade til að vera tímabundinn trommara. En vegna góðrar frammistöðu Chris var honum boðið að ganga til liðs við sveitina.
Eftir æfinguna í Brighton lá leiðin til Little Mountain stúdíósins til að taka upp næstu plötu. Í þetta sinn var platan próduseruð af Bruce Fairbairn. Hún var tekin upp á 6 vikum. Það fyrsta sem heyrðist af plötunni var fyrsti singullinn, Thunderstruck, sem komst upp í 13. sæti á breska vinsældalistanum. Platan fékk nafnið The Razors Edge og kom út í september 90. Hún komst í 4. sæti á breska metsölulistanum og í það 2. í Bandaríkjunum og seldist í alls 60 milljónum eintaka og singlarnir Moneytalks og Are You Ready komust á topp 40 í Bretlandi. The Razors Edge túrinn byrjaði í Ameríku, og þeir fóru þaðan til Evrópu og síðan til Bandaríkjanna. Í ágúst spiluðu þeir svo á Donington hátíðinni.
Last Action Heroes
Nú stóð til að gefa út fyrstu tónleikaplötuna með Brian sem söngvara og fékk hún heitið AC/DC-Live At Donington.
Sumarið 93 tóku þeir upp lagið Big Gun fyrir nýjustu mynd Arnolds Schwarzeneggers, Last Action Hero en önnur lög í sándtrakkinu voru með m.a. með böndum á borð við Megadeth, Alice In Chains og Def Leppard.
Í ársbyrjun 95 var orðrómur um að Phil Rudd væri að byrja í bandinu á ný. Í lok seinasta túrs, þá hittu Angus og Malcolm Phil í Nýja-Sjálandi og hann spurði hvort það væri séns á að hann gæti komið aftur í bandið og þegar þeir voru að æfa í Englandi þá buðu þeir honum að koma í bandið á ný. AC/DC byrjuðu að taka upp í NY en þeir voru ósáttir við hljóðið svo þeir skiptu yfir til Los Angeles og byrjuðu að taka upp þar. Þeir fengu Rick Rubin til að pródusera en hann próduseraði líka Big Gun. Í byrjun september 95 þá kom fyrsti singullinn út en hann bar heitið Hard As A Rock. Platan sjálf, Ballbreaker, kom út 22. september. Ballbreaker túrinn byrjaði í janúar í Bandaríkjunum. En aðeins tvemur vikum eftir byrjun túrsins þurftu þeir að hætta við fjögur gig vegna dauða föður Brians. Bandaríska hlutanum lauk 4. apríl og 20. apríl byrjuðu þeir á Evrópu partinum þar sem sveitin The Wildhearts hitaði upp fyrir þá. Evrópuhlutanum lauk síðan 13. júlí í Frakklandi.
99 var stórt ár fyrir AC/DC því þá fóru þeir aftur í stúdío til að taka upp 17. plötu sína. Lögin voru samin í Hollandi, Austurríki og á heimili Malcolms í London. Hún var tekin upp í stúdíoi Brians, Warehouse Stúdíóinu í Vancouver í Kanada og George Young próduseraði. 17 lög voru tekin upp en aðeins 12 náðu inn á plötuna. Svo árið 2001 kom út live dvd diskurinn No Bull Live Plaza De Toros De Las Ventas, Madrid og nú er bara að bíða eftir nýrri plötu frá þessum snillingum.
Liðsmenn AC/DC:
Angus McKinnon Young:Lead gítarleikari
Malcolm Young:Ryþma gítarleikari
Brian Johnson:Söngvari
Cliff Williams:Bassaleikari
Phil Rudd:Trommuleikari
Fyrir þá sem vilja lesa meira um AC/DC þá er mælt með þessum bókum:
Hell Ain't No Bad Place To Be eftir Richard Bunton
Shock To The System eftir Mark Putterford
AC/DC - The world's most electrifying rock'n'roll band! eftir Malcolm Dome
AC/DC - The World's Heaviest Rock eftir Martin Huxley
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.9.2006 | 14:25
one of the best bands inthe world ;)
Links Zu Rechts:Steve Adler,Izzy Stradlin,Axl Rose,Duff Rose,Slash[mehr information auf die Web;)]



Bloggar | Breytt 6.10.2006 kl. 11:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2006 | 12:28
REYKIRÐU?:
Vissir þú að sígaretta inniheldur:
AMMONÍAK mest notað til að hreinsa klósett.
ARSENIK bragðlaust hvít eiturefni, mest notað í iðnaði.
ASETON til að hreinsa naglalakk.
BENZÓPYREN getur dregið úr frjósemi og skaðað barn í móðurkviði.
BLÁSÝRA banvænt eitur, var notað í fangabúðum nasista.
BRENNISTEINSVETNI - mjög eitrað við innöndun.
EDIKSÝRA - myndast við gerjun.
EITURSÝRA þarf tæplega frekari útskýringar
ELDFLAUGAELDSNEYTI langar þig til tunglsins (eða himna)???
KOLMÓNOXÍÐ - eitrað við innöndun. Hætta á alvarlegu heilsutjóni við innöndun við langvarandi notkun. Getur skaðað barn í móðurkviði.
KVEIKJARABENSÍN spennandi, eða hitt þó heldur.
KVIKASILFUR þungt gráleitt frumefni, notað í suma hitamæla ..
MÖLKÚLUR til að ná óþef úr fataskápum.
NIKÓTÍN - eitrað við inntöku. 1 dropi drepur mús.
PÓLÓNÍUM 210 - mjög geislavirkt og getur valdið krabbameini.
VINYLKLÓRÍÐ - getur valdið krabbameini.
ROTTUEITUR er eitthvað líkt með mönnum og rottum?
SKORDÝRAEITUR sumir geta verið óttalegar pöddur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)